MIG suðuvélar
MIG suðuvélar

MIG suðuvélar

SPARTUS er með gott úrval af MIG MAG suðuvélum.

Bæklingur um Easy vöruflokkinn er hér á ensku. Þar á meðal MIG/MAG vélarnar.

Einnig má smella á vöruflokk um vélar með eða án púls og sjá það úrval sem er í boði ásamt tækniupplýsingum.

Hægt er að hafa samband við jupo@jupo.is með frekari fyrirspurnir og ósk um verðtilboð.

MIG MAG-suða

MIG (metal inert gas) og MAG (metal active gas) eru algengustu suðuaðferðirnar í Vestur-Evrópu, Bandaríkjunum og Japan. Vinsældir þeirra byggjast á mikilli framleiðni og hversu auðvelt er að nota þær í sjálfvirkum vélasamstæðum.

Við MIG-/MAG-suðu er notast við fylliefni, sem er ýmist gegnheill vír eða rörþráður sem mataður er í gegnum suðubyssu.Vírinn bráðnar jafnt og þétt í ljósboga.Orkan í ljósboganum myndast fyrir tilstilli aflgjafa. Hlífðargas sem flæðir út um gaspíss suðubyssunnar ver ljósbogann og suðubráðina.

Hlífðargastegundir sem notaðar eru við suðu eru annað hvort hlutlausar(MIG) eða virkar (MAG). Hlutlaust merkir í þessu tilviki að gastegundin hvarfast ekki við bráðina eða bráðnandi vírinn. Hlutlausar gastegundir eru meðal annars argon og helíum.Virkar gastegundir bjóða upp á fleiri möguleika til að bæta vinnsluferlið og auka gæði suðunnar. Mörg efni, svo sem smíðastál, þarfnast virkra gastegunda til að tryggja stöðugleika ljósbogans. Argon/koldíoxíð og argon/súrefni eru dæmi um virkar gasblöndur.MISON® hlífðargastegundir eru gasblöndur sem m.a. bæta vinnuuhverfið og henta fyrir öll suðuverkefni.

Með því að nota óhefðbundnar færibreytur við suðu er hægt að nota MAG-suðu á enn fleiri sviðum og auka framleiðnina til muna.Þetta er hugmyndin á bak við RAPID PROCESSING®, sem þróað var af AGA til að auka verulega framleiðni við MAG-suðu.

Við MIG-/MAG-suðu, sem og við aðrar suðuafðerðir, myndast reykur og gastegundir sem eru skaðlegar suðumanninum.Þess vegna skal ávallt gera viðeigandi öryggisráðstafanir.

Til að vernda suðumanninn fyrir þessum reyk verður að tryggja góða loftræstingu á suðusvæðinu. Aukið öryggi fæst með því að nota MISON® hlífðargastegundir. Þær minnka ósonmyndun til muna, en óson myndast að jafnaði í reyk og gasi við mikinn hita.

Helsti tilgangur hlífðargastegunda í ljósbogasuðu erað verja bráðið efni og heitan málminn fyrir skaðlegum áhrifum andrúmsloftsins, sem og að skapa rétt umhverfi fyrir ljósbogann.

Virk sía

Vörumerki: SPARTUS Suðuvörur

EasyMIG 227 DUAL PULSE

Umsögn(ir): 0
SPARTUS® EasyMIG 227DP er Öflug, nákvæm og meðfærileg rafsuðuvél með hálfsjálfvirkan inverter. Vélin hefur tvöfalda púls stillingu. Leyfir suðu í óvirkri og virkri gashlíf (MIG/MAG), Flux vír, húðuð rafskaut (MMA pinnasuða) og TIG Lift með ljósboga kveikju. Hægt er að sjóða með Ál vír. Nánar um vörulínu Spartus má finna hér:https://jupo.spartus.info/en/
185.380 kr
Meira
Til á lager

Vörumerki: SPARTUS Suðuvörur

EasyMIG 200

Umsögn(ir): 0
SPARTUS® EasyMIG 200 er létt og meðfærileg MIG rafsuðuvél með hálfsjálfvirkan inverter. Leyfir suðu í óvirkri og virkri gashlíf (MIG/MAG), húðuð rafskaut (MMA pinnasuða) og TIG Lift með ljósboga kveikju. Nánar um vörulínu Spartus má finna hér:https://jupo.spartus.info/en/
74.933 kr
Meira
Til á lager

Vörumerki: SPARTUS Suðuvörur

EasyMIG 500 DUAL PULSE á vagni með kæli og aðskildum víramatara

Umsögn(ir): 0
SPARTUS® EasyMIG 500 Dual Pulse er þriggja fasa suðuvél fyrir vír á bilinu 0,8 til 1,6 mm. Innbyggt kælikerfi ásamt Pulse, Cool Pulse og Dual Pulse stillingum gerir þetta að einni fjölhæfustu MIG suðuvél á markaðnum. Pakkinn inniheldur • EasyMIG 500DP • aðskilda fjögurra rúllu víramatara • kæli • hjólavagn með festingu fyrir gaskút • ofkælivökva -...
617.148 kr
Meira
Til á lager

Vörumerki: SPARTUS Suðuvörur

EasyMIG 210LED

Umsögn(ir): 0
SPARTUS® EasyMIG 210LED er fjölbreytt og meðfærileg rafsuðuvél með hálfsjálfvirkan inverter. Leyfir suðu í óvirkri og virkri gashlíf (MIG/MAG), Flux vír, húðuð rafskaut (MMA pinnasuða) og TIG Lift með ljósbogakveikju. Nánar um vörulínu Spartus má finna hér:https://jupo.spartus.info/en/
85.503 kr
Meira
Til á lager

Vörumerki: SPARTUS Suðuvörur

EasyMIG 215

Umsögn(ir): 0
SPARTUS® EasyMIG 215 er mjög fjölhæf og meðfærileg rafsuðuvél með hálfsjálfvirkan inverter. Leyfir suðu í óvirkri og virkri gashlíf (MIG/MAG), Flux vír, húðuð rafskaut (MMA pinnasuða) og TIG Lift með ljósboga kveikju. Hægt er að sjóða með Ál vír. Nánar um vörulínu Spartus má finna hér:https://jupo.spartus.info/en/
122.678 kr
Meira
Til á lager

Vörumerki: SPARTUS Suðuvörur

EasyMIG 225

Umsögn(ir): 0
SPARTUS® EasyMIG 225 er Öflug og meðfærileg rafsuðuvél með hálfsjálfvirkan inverter. Leyfir suðu í óvirkri og virkri gashlíf (MIG/MAG), Flux vír, húðuð rafskaut (MMA pinnasuða) og TIG Lift með ljósboga kveikju. Hægt er að sjóða með Ál vír. Tekur 15 kg 300mm rúllur. Nánar um vörulínu Spartus má finna hér:https://jupo.spartus.info/en/
151.860 kr
Meira
Til á lager