Jupo Íslandi ehf er umhugað um persónuvernd og öryggi gagna sem fyrirtækið meðhöndlar. Í persónuverndarstefnu Jupo Íslandi ehf kemur fram í hvaða tilgangi persónuupplýsingum er safnað og hvernig farið er með slík gögn. Markmið okkar er að viðskiptavinir, samstarfsaðilar og aðrir einstaklingar, séu upplýstir um hvernig fyrirtækið safnar og vinnur persónuupplýsingar.
Jupo Íslandi ehf kt.630615-1270, Hjallabrekku 47, 200 Kópavogi er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem veittar eru fyrirtækinu. Hægt er senda skriflega fyrirspurn til fyrirtækisins um meðferð persónuupplýsinga á netfangið jupo@jupo.is.
Persónuupplýsingar eru sérhverjar persónugreindar eða persónugreinanlegar upplýsingar um hinn skráða, þ.e. upplýsingar sem beint eða óbeint má rekja til tiltekins einstaklings, samkvæmt skilgreiningu persónuverndarlaga. Gögn sem eru ópersónugreinanleg teljast ekki persónuupplýsingar.
Um meðferð Jupo Íslandi ehf á persónuupplýsingum fer samkvæmt gildandi lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eins og þau eru á hverjum tíma hér á landi.
Söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga:
Jupo Íslandi ehf safnar persónuupplýsingum um viðskiptavini sína til að veita þeim aðgang að vörum og þjónustu í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga, til að tryggja að þjónusta sé löguð að þeirra þörfum og til að miðla til þeirra upplýsingum í markaðslegum tilgangi. Markmiðið með upplýsingasöfnun er fyrst og fremst til þess að þjónusta viðskiptavini betur og aðlaga og bæta upplifun þeirra af þjónustu Jupo Íslandi ehf.
Jupo Íslandi ehf safnar einungis persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita viðeigandi þjónustu hverju sinni. Kjósi viðskiptavinur að veita ekki persónuupplýsingar er möguleiki á að Jupo Íslandi ehf geti ekki útvegað viðkomandi aðila vörur eða veitt þjónustu.
Jupo Íslandi ehf nýtir aldrei persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem þær voru safnaðar fyrir. Gögn eru geymd eins lengi og nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslu og skilmála samninga, nema þegar lög og reglur kveða á um lengri geymslutíma.
Viðskipti einstaklinga:
Jupo Íslandi ehf safnar upplýsingum um viðskiptavini sína í tengslum við einstök viðskipti. Þannig safnar Jupo Íslandi ehf m.a. samskiptaupplýsingum viðskiptavina, upplýsingum um þá vöru og/eða þjónustu sem keypt er, t.d. vörunúmer og verð.
Gerist viðskiptavinur brotlegur kann að vera unnið með upplýsingar um brot á grundvelli lögmætra hagsmuna fyrirtækisins. Þá kunna brot að vera tilkynnt til lögreglu.
Póstlisti:
Jupo Íslandi ehf vinnur með tölvupóstfang, sem einstaklingur hefur skráð og samþykkt notkun á fyrirfram, í útsendingum á markpósti til einstaklinga á póstlista fyrirtækisins. Enn fremur getur einstaklingur skráð upplýsingar eins og t.d. nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og kyn. Þá er óskað eftir samþykki til þess að vinna með upplýsingar um kaup hans á vörum og þjónustu Jupo Íslandi ehf í því skyni að stunda markaðssetningu á vörum og þjónustu Jupo Íslandi ehf. Með skráningu þessara valkvæðu upplýsinga samþykkir einstaklingur að Jupo Íslandi ehf megi samkeyra upplýsingar um hann úr öðrum viðskiptakerfum fyrirtækisins, s.s. sölukerfi og CRM-kerfi (e. Customer relationship management), til þess að geta veitt betri þjónustu og sent út einstaklingsmiðaðri skilaboð.
Þessi vinnsla byggir á samþykki og er einstaklingi alltaf heimilt hvenær sem er að afturkalla samþykki sitt og afskrá sig af póstlista fyrirtækisins með því að ýta á þar til gerðan hlekk í markpóstum, senda póst á netfangið Jupo Íslandi@Jupo Íslandi.is.
Forsvarsmenn fyrirtækja og stofnana:
Komi einstaklingur fram fyrir hönd samstarfsaðila Jupo Íslandi ehf, s.s. birgja, verktaka eða viðskiptamann sem er lögaðili, kann Jupo Íslandi ehf að vinna með tengiliða upplýsingar hans, s.s. nafn, símanúmer og tölvupóstfang. Þá kann Jupo Íslandi ehf að vinna með samskiptasögu og eftir atvikum reikningsupplýsingar. Þessi vinnsla er fyrirtækinu nauðsynleg til að geta uppfyllt skyldur sínar á grundvelli samnings við viðkomandi samstarfsaðila. Þá kann fyrirtækinu að vera skylt að vinna með slíkar upplýsingar á grundvelli lagaskyldu, s.s. bókhaldslaga.
Ábendingar og/eða athugasemdir frá viðskiptavinum:
Ef einstaklingur sendir inn ábendingu eða kvörtun mun Jupo Íslandi ehf almennt vinna með samskiptaupplýsingar hans, s.s. nafn og netfang, og efni þeirrar kvörtunar eða ábendingar sem hann hefur kosið að koma á framfæri. Upplýsingar eru geymdar eins lengi og nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslu.
Miðlun persónuupplýsinga:
Jupo Íslandi ehf nýtir aldrei persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem þær voru safnaðar í. Jupo Íslandi ehf miðlar ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila nema að fengnu samþykki, í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga, á grundvelli lögmætra hagsmuna fyrirtækisins eða á grundvelli lagaskyldu.
Jupo Íslandi ehf áskilur sér rétt til að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila (vinnsluaðila) sem er þjónustuveitandi, umboðsmaður eða verktaki Jupo Íslandi ehf í þeim tilgangi að veita þjónustu sem beðið hefur verið um.
Jupo Íslandi ehf deilir upplýsingum, í tölfræðilegum tilgangi, með vinnsluaðilum sem vinna með fyrirtækinu við gæða- og markaðsstarf. Jupo Íslandi ehf afhendir vinnsluaðilunum einungis þær persónuupplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir þá í framangreindum tilgangi og gerður er við þá samningur þar sem þeir undirgangast skyldu um að halda upplýsingum um einstaklinga öruggum og nota þær einungis í framangreindum tilgangi.
Allir vinnsluaðilar Jupo Íslandi ehf og samstarfsaðilar hafa undirritað viðeigandi trúnaðaryfirlýsingu og vinnslusamning í samræmi við ákvæði persónuverndarlaga. Jupo Íslandi ehf tryggir þannig vernd persónuupplýsinga í samræmi við lög og reglur um persónuvernd eins og þau eru á hverjum tíma. Þar á meðal með mótun öryggisstefnu um meðferð og öryggi persónuupplýsinga og setningu öryggis- og verklagsreglna eins og krafist er í persónuverndarlögum.
Í þeim tilfellum þegar þriðji aðili (vinnsluaðili) fær aðgang að persónuupplýsingum, tryggir Jupo Íslandi ehf trúnað og að gögnum sé eytt að vinnslu lokinni. Jupo Íslandi ehf leigir aldrei eða selur persónuupplýsingar um viðskiptavini.
Öryggi gagna:
Jupo Íslandi ehf leggur áherslu á að tryggja að varðveislu persónuupplýsinga sé háttað á öruggan máta, að viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir séu gerðar til að tryggja mesta öryggi gagna hverju sinni.
Þessum ráðstöfunum er ætlað að vernda persónuupplýsingar gegn því að þær glatist eða breytist fyrir slysni og gegn óleyfilegum aðgangi, afritun, notkun eða miðlun þeirra. Breytingar og leiðréttingar á persónuupplýsingum
Öll samskipti við vefþjóna Jupo Íslandi ehf eru dulkóðuð yfir öruggar vefslóðir (HTTPS).
Réttindi þín:
Einstaklingur á rétt á og getur óskað eftir að Jupo Íslandi ehf veiti honum upplýsingar um þær persónuupplýsingar sem fyrirtækið býr yfir sem og um vinnslu og meðferð upplýsinga um hann. Þá kann einnig að vera að einstaklingur hafi rétt á að fá afrit af upplýsingunum. Við ákveðnar aðstæður getur einstaklingur farið fram á það við fyrirtækið að við sendum upplýsingar, sem hann hefur sjálfur látið okkur í té eða stafa frá honum, beint til þriðja aðila.
Einstaklingur á rétt á því í vissum tilvikum að persónuupplýsingar um hann séu leiðréttar eða þeim eytt, t.d. ef upplýsingarnar eru ekki lengur nauðsynlegar í þágu þess tilgangs sem þeirra var upphaflega aflað.
Vilji einstaklingur ekki láta eyða upplýsingum sínum, t.d. vegna þess að hann þarf á þeim að halda til að verjast kröfu, en vill samt sem áður að þær séu ekki unnar frekar af hálfu fyrirtækisins getur hann óskað eftir því að vinnsla þeirra verði takmörkuð.
Sé vinnsla á persónuupplýsingum einstaklings byggð á lögmætum hagsmunum fyrirtækisins á hann einnig rétt á að mótmæla þeirri vinnslu.
Framangreind réttindi einstaklingsins eru þó ekki fortakslaus. Þannig kunna lög að skylda fyrirtækið til að hafna ósk um eyðingu eða aðgang að gögnum. Þá getur fyrirtækið hafnað beiðni hans vegna réttinda fyrirtækisins, s.s. á grundvelli hugverkaréttar, eða réttinda annarra aðila, s.s. til friðhelgi einkalífs, telji fyrirtækið þau réttindi vega þyngra. Réttindi þín til að mótmæla vinnslu í markaðssetningar tilgangi er þó skilyrðislaus.
Einstaklingi verður tilkynnt og gefin skýring ef töf verður á afgreiðslu eða ef ekki er unnt að verða við beiðninni að fullu eigi síðar en mánuði frá móttöku hennar. Einstaklingur getur kvartað til Persónuverndar (www.personuvernd.is) ef Jupo Íslandi ehf neitar að afhenda honum ákveðnar upplýsingar eða ef einstaklingur er ósáttur við vinnslu Jupo Íslandi ehf á persónuupplýsingum.
Ef upp koma aðstæður þar sem að fyrirtækið getur ekki orðið við beiðni einstaklings mun fyrirtækið leitast við að útskýra hvers vegna beiðninni hefur verið hafnað, þó með tilliti til takmarkana á grundvelli lagaskyldu.