- Nýtt
Dæmi um eldhúsinnréttingu frá ATLAS með AGATA framhliðar.
ATH Atlas innréttingar eru í háum gæðaflokki.
Ef þú leitar að ódýrri innréttingu getum við skoðað aðrar lausnir, sendu póst á jupo@jupo.is
Einnig getum við útvegað innréttingar í hæsta gæðaflokki, t.d. úr gegnheilli Eik, nánar á jupo@jupo.is
Atlas er ekki bara að framleiða eldhúsinnréttingar, þeir geta framleitt hvaða innréttingar sem er, eftir máli. Skrifborð, fataskápar, þvottahúsinnréttingar, baðinnréttingar og svo frv. Nánar um það hér.
AGATA - Eldhúsinnrétting
Hér er sýnishorn og verðdæmi af eldhúsinnréttingu frá Atlas Kuchnie. Dæmið er án tækja. Þetta er sett fram sem dæmi til að áhugasamir geti áttað sig á verði innréttinga með þessari útfærslu og þessum framhliðum.
Atlas innréttingar eru sér hannaðar og er Jupo Íslandi með hönnuð á sínum vegum. Ath verðið inniheldur hönnunarkostnað og flutning heim að dyrum.
Atlas innréttingar eru seldar samsettar, fyrir utan stærstu einingarnar. Því þarf bara að stilla þeim upp, festa, setja borðplötur á og framhliðar.
Agata er ódýrasta útgáfan af framhliðum. Þær eru 18 mm þykkar, spónlagðar framhliðar með 2 mm þykkum plastkanti. Dýrasta útgáfan af framhliðum er um 400.000 kr m/VSK dýrari.
Þessar framhliðar eru fáanlegar í 12 litum. Hægt er að hafa fleiri en einn lit í innréttingunni. Í dæmi 1 (hvít og rauð) er notaður 550 - White body og 575 - ceramic. Borðplatan, endaplatan og bak platan eru 482. Í dæmi 2 er notaður 570 Cobalt gray liturinn og borðplatan er 607, endaplatan og bak platan eru sama 607.

Hér að neðan eru þeir valmöguleikar sem eru í boði með áferð innan í skápum. Allir þessir litavalmöguleikar eru í boði fyrir allar innréttingar.

Einnig er hægt að blanda saman fleirri en einni tegund af framhliðum. T.d. með náttúrulegum við. Hér má sjá úrvalið í boði.
Involsið í einingarnar í þessu eldhúsi eru af gerðinni Julius Blum. Blum er Austurrískt fyrirtæki sem hefur framleitt lamir, skúffur og slíkt síðan 1958. Allar lamir, sleðar og annað frá þeim er með ævilangri ábyrgð. Ef hlutur bilar, er hann skrúfaður úr og sendur þeim og þeir senda nýja til baka.
Allar lamir og skúffur eru með mjúk-lokun.
Skúffur og innra birgði er hægt að fá í þrem litum. Hvítt, ljós grátt og dökk grátt. Einnig er hægt að fá opnar hliðar eða með gler hliðar.

Eftirfarandi einingar eru í þessu dæmi:

Allt hefðbundnar 60sm á breidd og háu einingarnar eru 215,3sm á hæð. Í boði er að fá aðra röð ofan á efri skápana sem ná upp í loft. Í hæðunum 36sm, 43,3sm og 57,7sm.
Í boði eru einingar sem eru 15sm, 20sm, 25sm, 30sm, 40sm, 45sm, 50sm, 60sm, 80sm, 90sm, 100sm, 120sm á breidd.
Nokkrar tegundir af borðplötum eru í boði.
Hefðbundið eru spónlagðar plötur (plast á spónaplötu) og er hægt að fá slíkar borðplötur í þyktunum 25 og 38mm Svo er hægt að fá þær sem bak- og hliðarplötur í 18mm.


Einnig eru í boði viðarborðplötur úr gegnheilli Eik.

Líka er í boði að kaupa steinplötur frá Forma System Þar eru í boði Technistone (composit borðplötur sem þola allt), Kvarts plötur, Granít plötur, Keramík plötur og Sensa, sem eru granít plötur sem hafa verið húðaðar með varnarefnum.
Atlas eldhús hafa mikið úrval af aukahlutum í boði. Úrval ljósa, margskonar ílát og körfur, servo unit (hægt að opna með fætinum), innstungur, bleytuvarnir og hnífaparaskúffur úr tré.



Einnig eru fjölmargar útgáfur af Cargo skápum. Það eru 9 útfærslur af hornskápum. Handklæða og flöskurekkar, útdraganlegir rekkar, háir og skúffurekkar.

Það er mikið úrval af höldum.




Eftirfarandi eru þær skápastærðir sem eru staðlaðar. Einnig er í boði að sérsmíða einstakar einingar. En ath að skúffur kunna ekki að passa í þeirri stærð.





Ekki er hægt að senda umsögnina
Tilkynna athugasemd
Kvörtun send
Ekki ert hægt að senda kvörtunina
Skrifaðu umsögn
Umsögn send
Ekki er hægt að senda umsögn þína
Dæmi um eldhúsinnréttingu frá ATLAS með AGATA framhliðar.
ATH Atlas innréttingar eru í háum gæðaflokki.
Ef þú leitar að ódýrri innréttingu getum við skoðað aðrar lausnir, sendu póst á jupo@jupo.is
Einnig getum við útvegað innréttingar í hæsta gæðaflokki, t.d. úr gegnheilli Eik, nánar á jupo@jupo.is
Atlas er ekki bara að framleiða eldhúsinnréttingar, þeir geta framleitt hvaða innréttingar sem er, eftir máli. Skrifborð, fataskápar, þvottahúsinnréttingar, baðinnréttingar og svo frv. Nánar um það hér.
check_circle
check_circle